Velkomin á vefsíðu gistiheimilisins Blábjörg í Borgarfirði Eystra
Gistiheimilið Blábjörg er staðsett í gamla Frystihúsinu í miðju Bakkagerði á Borgarfirði eystra. Húsið var byggt árið 1946 og hófst vinnsla þar tveimur árum síðar en lagðist af seint á árinu 1991. Húsið stóð að mestu ónotað fram til ársins 2006 þegar núverandi eigendur keyptu húsið. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu undanfarin ár og gistiheimilið opnaði 18.júní 2011.
Við bjóðum upp á 11 tveggja manna herbergi með uppábúnum rúmum og ókeypis þráðlausu interneti.
Frábært útsýni út Borgarfjörðinn
Einstakt fuglalíf í fjörunni við húsið
Góðar gönguleiðir í nágrenninu
Gott verð og tilboð í hópa
Hérna geturðu náð í bæklinginn okkar á ensku.
Hafið samband til að fá tilboð í gistingu fyrir hópa.






